Margt skemmtilegt gerist á litlum veitingastað. Mér fannst allavega gaman í dag þegar kona hringdi til að panta borð af því hún hafði séð okkar getið í blaði og þekkti nafnið mitt. Það er náttúrlega furðulegt, eignarfallsmynd af karlmannsnafni, en fólk man það. Það gerði þessi kona, en við áttum heima í sama húsi um miðbik síðustu aldar. Hún mundi mig 63 árum síðar.